Skráning
ilmvatn.net open í pool
Dagana 9. og 10. nóvember fer fram ILMVATN.NET OPEN Í POOL. Mótið er haldið í samvinnu við Billiardbarinn í Faxafeni.
Keppt verður í 8 ball og er öllum frjáls þátttaka. Þátttökugjald er 5.000 kr. og allir sem taka þátt fá gjafabréf frá ILMVATN.NET uppá 5.000 kr.
50% af þátttökugjaldinu fer í verðlaunafé sem skiptist á milli sæta 1 – 3.
Skráning fer fram hér á síðunni og hjá Billiardbarnum Faxafeni. Skráningarfrestur er til kl. 19.00, 9. nóvember og mótið hefst kl. 19.15 sama dag.
Keppnisfyrirkomulag er útsláttur: 2 töp og út – sem þýðir að þótt þú pantir fyrsta leik þá ertu ekki dottinn út úr mótinu. Síðan er beinn útsláttur þegar 16 eða 8 síðustu standa eftir í mótinu. Það fer eftir heildarþátttöku í mótinu. Spilað er Best af 5 – sá vinnur sem fyrr vinnur 3 leiki. Í 16 manna og niður í úrslit er spilað Best af 7. Spilað er með hefðbundnum POOL reglum og hægt er að fá leiðsögn hjá dómara á meðan mótinu stendur.
Gerum þetta að veglegasta POOL móti á landinu. Segja má að það sé frítt í mótið þar sem allir þátttakendur fá gjafabréf frá ILMVATN.NET uppá sömu upphæð og þátttökugjaldið er. Keppendur fá gjafabréfið afhend við upphaf mótsins.
Skráning fer fram hér á netinu og greiða þarf skráningargjaldið við skráningu. Smelltu á hnappinn hér að neðan til að skrá þig.
Skráning